Bloggsvæði Halla
Myndasöfn
01.08.2007 23:05:54 / aljekin

Ágúst og það sá fyrsti

 

Jæja það er kominn 1.ágúst og þá á mín elskulega systir Brynja Ásta afmæli og því fann ég mig knúinn til að skrifa nokkrar línur.Til hamingju með daginn elsku systir og þú fyrirgefur mér letina að nenna ekki að keyra upp á skaga í kaffi en hugur minn var hjá þér í dag og var ég að skoða gamlar myndir af okkur sem rifjaði upp minningar sem eru bara ljúfar í gegnum tíðina.kveðjur og knús til þín og þinnar fjölskyldu.svo eru allir farnir að plana ferðalög um helgina en ég ætla bara að vera innipúki þessa helgi að mestu leiti.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 22:52:38 / aljekin

Verki lokið

 

Jæja vinir þá er þessari ritsmíð minni um fjölskyldu konunnar lokið.Mér líður bara ögn betur á eftir og gott að hafa drifið í þessu.Og líka ágætt að birta þetta hér þó ekki séu nú margir sem lesa þettaEnda er þetta nú bara fyrir þá sem áhuga hafa á og svo held ég að ég hafi lært alveg Heilmikið sjálfur á þessum skrifum og stúdíu því ekki er auðvelt fyrir okkurÍslendinga að læra svona í hvelli nöfn fólksins því ég spyr Kam “Hvað heitirÞessi frændi þinn”? og hún segir mér það svo er ég búinn að gleyma því eftir Smátíma. En þegar ég var búinn að skrifa þetta hjá mér og setja þetta á blað þáEinhvernveginn festist þetta inni.Líkt og með tossamiðann þegar ég fer út að verslaEf hann er ekki til staðar gleymi ég einhverju örugglega en ef ég er búinn að Skrifa þetta niður tíni ég allt í körfurnar án þess að líta á miðann.Jæja bara allt gott að frétta og öllum framkvæmdum hér í Klapparberginu lokið.Ég bíð nú bara eftir því að komast á sjóinn og hitta strákana þó að mér leiðist nú Aldrei heima hjá mér. Haddý og Helgi og Pabbi,Helga og Lára komu hér í matÍ gær og var það æði skemmtileg kvöldstund og var tekinn rúntur í kringum húsiðOg verkið mikla tekið út og leist þeim bara vel á.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 00:12:17 / aljekin

Niðurlag ritgerðar minnar um fjölskyldu Kam

 

Lokaorð  

  Ég hef bara stiklað á stóru í þessari samantekt minni um Fjölskyldu Kam og aðallega gert það fyrir mig sjálfan til að geta betur kynnst hennar fólki. Presturinn í Kirkjunni í Ubon heitir David og er afskaplega geðþekkur maður og almennilegur og er giftur og á tvö börn. Hann og Suwit jarðsungu gömlu hjónin og sá ég við Jarðarför Tengdamóður minnar hvað Suwit er góður ræðumaður og hann talar líka reibrennandi ensku og gat útskýrt margt fyrir mig. En ég komst ekki á jarðaför tengdapabba tveimur árum fyrr því ég var nýfarinn út á sjó þegar það skeði.Tengdamamma kom tvisvar til Íslands eftir að Thaleng dó og var hér í góðan tíma en var fljótlega farinn að sakna heimahaganna og sagði við mig “Kittung ban” sem þýðir á Thai Ég er með heimþrá. En dætur hennar hér vildu hafa hana lengur en það var ekki tauti við hana komandi hún vildi fara heim.    Ég kynntist einnig nokkrum afkomendum systkina Þeirra Thaleng og Tongdam en of langt mál yrði að telja það upp en ég veit að börn systkina  Pabba Thaleng eru um 33stk og fullt af barnabörnum og sjálfsagt ekki minna hjá systkinum hennar mömmu Tongdam svo þetta er stór hópur.     Það er að nálgast 50 ár frá því að Amerísku trúboðarnirHeimsóttu þetta litla þorp í Thailandi og merkilegt nokk þá er þessi fjölskylda öll Kristinnar trúar eins og við hérna á Íslandi og er biblían höfð uppi við og biblíumyndir á veggjum hjá þessu fólki og enn er farið í kirkju á sunnudögum þó að það sé aðeins lengra ferðalag í Bangkok en hér í Reykjavík .    Ég vona að þið séuð einhvers vísari eftir lestur þessa Pistils af hverju þetta fólk er Kristinnar trúar en ekki Búdda eins og 90% ThailendingaOg af hverju tengdaforeldrar mínir eru jarðsett í Ubon en ekki Dongloy.  

                                              Reykjavík 14/07 2007 

                                                       Haraldur Haraldsson  

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 00:28:45 / aljekin

Wilailux Lumpha (Kam)

 

Wilailux Lumpha    

                                                                    Kam er fædd í Dongloy í Thailandi á því herransÁri 2496 samkvæmt Búdda tali en 1953  eftirKristnu tímatali. Hún ólst upp hjá pabba sínum og Mömmu og er næst elst í stórum systkinahóp einsOg áður hefur komið fram. Hún var strax á unga Aldri dugleg að vinna og hjálpa til á heimilinuOg hugsaði vel um yngri systkini sín.Hún hafði brennandi áhuga á að læra enda afi Hennar skólastjóri og stofnandi skólans ogForeldrarnir hvöttu hana einnig áfram.Hún kláraði barnaskólann í Dongloy og fór svoTil Borgarinnar Phanom Prai sem er aðeins í um 15 km fjarlægð frá heimili þeirra og þar klárarHún þrjá vetur í gagnfræðaskóla.Hún fer þá að heiman og fer í vist til afa síns og ömmu í Ubon Racatani. Hún er þar í þrjú ár og nemur Hárgreiðslu og að sauma föt.Jafnframt náminu þar þurfti hún að vinna fyrir sér og sagði hún mér að hún þurfti bæði að vinna á morgnana áður en hún fór í skólann og á kvöldin eftir hann. Kam lætur vel af dvölinni í Ubon og er mikill kærleikur milli hennar og Ömmu Onsee og börnum hennar þó sérstaklega Bramjit  en þær eru eins og systur og hittast alltaf þegar þær hafa tök á.    Kam fer svo til Bangkok að loknu námi að harka á vinnumarkaðinum þar því að ekki var mikið að gera í hennar fagi í sveitinni. Hún leigir þar fyrst húsnæði og setur á stofn saumastofu ásamt Núan systur sinni sem einnig var búin að læra saumaskap. Fyrirtækið hjá þeim systrum fer að ganga vel og þær þurfa fljótlega að stækka við sig og kaupa því húsnæði undir starfsemina og eru með saumastofu niðri en svefnherbergi uppi.Þetta fer að ganga mjög vel með mikilli vinnu og dugnaði og þær eru komnar með fullt af fólki í vinnu til að anna eftirspurninni.    Þessi starfsemi þeirra systra gat svo hjálpað yngri systkinum þeirra til náms þeim Nang,Chaleo og Noiy og eru þau   langskólagengin og hámenntuð . Ég held að ég sé ekki að halla á neinn þó að ég telji að hlutur Kam í velgengi fjölskyldunnar sé mikill og hún hafi séð vel um systkini sín enda er það mjög ríkt í fólkinu að hjálpa sínu fólki og foreldrar í Thailandi þurfa að reiða sig á börnin sín í ellinni því að engin eru ellilaunin nema í einstaka tilfellum fá Ríkisstarfsmenn og hermenn eftirlaun.           Það urðu svo þáttaskil í lífi Kam þegar systir hennar Som bauð henni í heimsókn til Íslands árið 1993 þar hitti hún sögumann þessa pistils og settist að hér í þessu framandi landi og eins og annað sem hún hefur tekið sér fyrir hendur á lífsleiðinni gengur henni vel hér svo að sómi er að. 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 18:07:09 / aljekin

Tongdam Lumpha mamma Kam

 

Tongdam Lumpha      

          1924-2007     Foreldrar hennar voru Ma og Ruan bændafólk í DongloyOg ólst hún upp í stórum systkynahóp þau voru alls 11 Og er þetta röðin á þeim.:      (1)      Tu    býr í Kampengpet rúmlega 90 ára  (2)    Buddi býr í Petchabun  90 ára  (3)   Lee dáinn kona hans Úan býr í Dongloy (4)   Tongdam mamma ( 5)   Bo (6)   Loan Ekkja í Dongloy (7)   Sao Dáinn (8)   Duan býr í Dongloy gift á fjögur börn (9)   Pomma býr í Dongloy giftur með börn (10)                        Tong dáinn   (11)  Jan dáin    Tengslin á föðurfólki Kam voru meiri en á móðurfólkinu Nema þeirra systkina hennar sem bjuggu í sveitinni eða stutt þaðan frá til dæmis kom Buddi Næst elsti bróðirinn rúmlega níræður í jarðarför systur sinnar og yngri börnin höfðu aldrei Séð hann en Kam hafði séð hann fyrir mörgum árum og elsti bróðir hennar Tu syrgði hana mjög en treysti sér ekki í jarðaförina enda langt ferðalag ti Ubon fyrir 95 ára öldung. Mamma Tongdam var yndisleg kona og vildi öllum vel og hugsaði fyrst um að öllum liði vel og hefðu nóg að bíta og brenna áður en hún hugsaði um sig  Hún ól börn sín upp í sterkri réttlætiskennd og heilbrigðu líferni og þó að lífið í sveitinni sé Þarna eins og allstaðar annarstaðar með öll heimsins vandamál þá hef ég aldrei séð börnin hennar drukkin og þau eru alveg laus við alla fordóma gagnvart öðru fólki.Þegar hún var svo óvænt hrifinn á brott úr þessum heimi var hún að jafna sig á missinum  Af Pabba Thaleng og var að tala við dætur sínar hvað hana langaði að ferðast með þeim  Um landið og hún bað Som sem ætlaði að heimsækja hana um sumarið að halda fyrir sig Skemmtun í sveitinni eins og var í gamla daga! Sú skemmtun var haldin eftir jarðaförinaOg mætti óhemjumargt fólk úr sveitinni til að heiðra minningu hennar.   En nú eru þessi merku hjón bæði horfin á braut og er Þeirra sárt saknað.Ég var svo lánsamur að kynnast þeim árið 1996 þegar ég fór fyrst til Thailands en þá vorum við Kam búin að vera gift í tvö ár.Ég gleymi aldrei hvernig þau tóku á móti mér en verst var hvað tungumálið vafðist fyrir mér. En það bara skipti engu máli, þau voru svo yndisleg. Seinna komu þau svo tvisvar í heimsókn til okkar til Íslands bæði að sumri og vetri og höfðu gaman af . Thaleng veiktist svo um veturinn 2005 og fór í mikinn uppskurð og var tvísýnt um líf hans þá og fórum við Kam þá út en gamli maðurinn hresstist við, en fyrst eftir uppskurðinn var hann svolítið ruglaður og þekkti ekki konu sína og börn,en þegar þau sýndu honum mynd af mér sagði hann” Haldið þið að ég þekki ekki hann Halla tengdason minn”! það var mikið hlegið að þessu. En um sumarið í ágúst sama ár fer hann sína hinstu för í sveitina sína,læknar höfðu ráðlagt honum að fara ekki en náttúrubarnið lét ekki segjast.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 00:32:08 / aljekin

Thaleng Lumpha pabbi Kam

 

Thaleng Lumpha1927-2005                                        Hann ólst upp hjá foreldrum sínum Khian og Khongsri ásamt systkinum . Hann missir móður sínaUngur og er duglegur að hjálpa til við að sjá umSystkini sín og öll venjuleg sveitastörf sem þurftiAð inna af hendi. Fyrstu árin eftir móðurmissinnVoru honum erfið að sjálfsögðu og þar sem hann Var elstur í stórum systkinahóp mæddi oft mikið á Honum að sjá um þau. Hann þótti snemma framsýnnOg ráðagóður og hafði eins og faðir hans hæfileika Til að stjórna verkum og fólki. Hann var alla tíð Fátækur bóndi og kennari var hann um hríð Í skólanum í Dongloy og lét sér alla tíð velferðSkólans sig miklu varða. Hann kynnist konu sinni Tongdam í sveitinni og þau hefja búskapÁ landi föður hennar og þau eignast átta börn og ættleiða  einn strák frá Laos.Börn þeirra: (1) Paiboon f 1950 giftur Tu . Börn: 1.ES dáinn 2.Ann (2) Wilailux (Kam) f 1953 Gift Haraldi Haraldssyni Stýrimanni í Reykjavík. (3) Nuanjan f 1955 gift Vichai sem er atvinnuhermaður í Bangkok Barn: Onk(4) Pradit f 1957 d 1986 giftist Wanta. Börn: 1.Thitinat (Núi) 2. Sirapra (Num)(5) Yupin (Som) f 1959 Í sambúð með Lárusi Magnússyni á eitt barn frá fyrra hjónabandi með Albert Péturssyni : Guðmund Hannes . Athafnakona í Reykjavík.(6) Rongrat (Nang) f 1964 starfar hjá ríkinu gift Nong Lögregluþjón börn: 1.Idea 2. Atom  (7) Chaleo f 1966 hámenntaður verkfræðingur giftur EU börn 1.Lois 2. Vanissa(8) Ratana (Noiy) f 1970 Athafnakona í Reykjavík  (9) John  Kam fann hann ílla á sig kominnOg munaðarlausann í Ubon er í litlum samskiptum við fjölskylduna nú er verkamaður.   Thaleng kynnist trúboðum frá Ameríku sem koma og boða kristna trú í þorpinu og nokkrar fjölskyldur ganga í söfnuðinn en það er svo ekki fyrr en faðir hans fer til Ubon að skriður kemst á þau mál og söfnuðurinn reisir smá kirkju og stóran þátt á í því máli hálfbróðir hans Suwit næst elsti sonur Khian og Onsee . Hann var óþreytandi í því að boða kristna trú og predika á Sunnudögum. Chaleo bróðir Kam hefur sagt mér að fyrstu árin hafi verið erfið vegna þess að Búddatrúar skildu ekki hvers vegna fólk sem hafði verið Búdda gat söðlað um og urðu þau því fyrir aðkasti vegna þess en einnig sagðist hann eiga ljúfar minningar frá kirkjuferðum á sunnudögum.  Thaleng var vel liðinn í sveitinni og var frumkvöðull að ýmsum nýjungum og er vatnsgeymir sem hann fann upp nú á hverju heimili í sveitinni og eldstó sem hann fann upp einnig og eins og faðir hans var hann líka maður sátta og var oft fenginn til að stjórna verkum og ræðumaður var hann góður og minnist ég þess í minni fyrstu heimsókn til Dongloy í áramótahátíð þar sem fólkið kom saman setti hann hátíðina með ræðu og þó að ég skyldi ekkert sem hann var að segja skynjaði ég að þar fór mikill ræðumaður á kostum. Hann hafði líka stúderað læknavísindi og var ætíð kallaður til í sveitinni ef fólk fékk einhvern kvilla og kunni ráð og vissi hvað þurfti til að meðhöndla veikindin í mörgum tilfellum.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 11:45:14 / aljekin

Khian Lumpha Afi Kam

  Khian Lumpha.  Hann fæddist einhverntímann stuttu eftir aldamótin1900 og ólst Upp í Dongloy.Foreldrar hans gátu komið honum til mennta Enda hafði hann brennandi áhuga á því sjálfur og var það ekkiAuðvelt í þá daga í Thailandi fyrir fátækt sveitafólk að gangaMenntaveginn. Það er ein skýringin á hversu mörg BúddahofEru í landinu að þau voru notuð sem samkomustaður fólks ogEinnig voru þau notuð undir skóla fyrir börnin.Hann byrjar eftir námið að kenna í skólanum og hefur svo Búskap samhliða því og giftist fyrstu konu sinni Kongshri Sem lést um aldur fram og eignaðist með henni þrjú börn og var pabbi Kam Thaleng fyrsta barn þeirra,hin voru Talaang og Urai . Þau létu málefni skólans sig mjög varða og af miklum dugnaði og elju safna þau og leita styrkja fyrir byggingu skólahús sem er svo tekið í notkun árið 1945 og er þá Khian orðinn skólastjóri og starfaði sem slíkur þar til hann var kominn á eftirlaun og flutti til Ubon Racatani. Eftir að kona hans Kongshri deyr kynnist hann annari konu sinni sem heitir Hvad og eignast með henni tvær dætur Opad og Nutchanat.Þau skildu eftir stutt hjónaband og er Hvad enn á lífi í dag orðin rúml 90 ára.Khian og samkennari hans við skólann Onsee sem er mun yngri en hann fella nú hugi saman og giftast,þau eignast fjögur börn : Sukum, Suwit, Sahad og Bramjit. Onsee er því fósturmamma pabba hennar Kam og Amma hennar! Khian var framsýnn og frumkvöðull í sveitinni. T.d var hann fyrstur með útvarp og míkrafón.Hann var maður sem fólk leitaði ráða hjá og stjórnandi góður þegar framkvæma þurfti eitthvað í sveitinni. Kam sagði mér einnig að ef deilur komu upp milli manna var hann strax kallaður til að sætta málin svo ekki hallaði á neinn.Hann var einnig mælskur mjög og sögumaður góður og steig jafnan í pontu á mannamótum og því snjall ræðumaður. Umhyggjusamur var hann um fjölskyldu sína og börn og gerði ekki upp á milli þeirra og mátti ekkert aumt sjá og hjálpaði öllum sem á þurftu að halda.Ástæða þess að þau flytja ti Ubon Racatani var að Amerískir trúboðar sem höfðu verið að boða Kristna trú í borginni Phanom Prhai og í Dongloy kynnast þessum eldhuga og þegar Víetnam stríðið er skollið á vantar að byggja kirkju í Ubon og þeir fá Khian til að stjórna því verki.Hann gengur strax í þetta verkefni og hann og Onsee svo og börn þeirra fjögur ganga í söfnuðinn og flytja þangað búferlum.Khian var trúaður mjög og kærleiksríkur og er bréfið frá James Humphries fagurt vitni um það. Ameríkarnir gerðu vel við hann og byggði hann sjálfur hús við hliðina á Kirkjunni.Hann lést úr nýrnasjúkdómi árið 1973 og var mikill harmdauði öllum í Ubon og Dongloy og á ég mynd frá jarðarför hans þar sem Kam er ásamt ættingjum en hún er þá 20 ára.Onsee kona hans býr enn í Ubon í húsinu sem Khian ánafnaði söfnuðinum eftir þeirra dag og er 85 ára og helgar líf sitt börnum sínum og barnabörnum og guði.Hún er mjög trúrækin og boðar nú fagnaðarerindið á hverjum Sunnudegi í kirkjunni og er alltaf mætt fyrst til að gera allt klárt og húsið hennar er opið kirkjugestum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 11:54:51 / aljekin

Inngangur að ritgerð um Fjölskyldu Kam

Bangkok 4/7 2007

Það var þriðjudaginn 5 júní að Kam fær þær   fréttir að mamma hennar

 hafi látist í bílslysi   þá um nóttina. Hún hafði verið á ferðalagi ásamt

dóttur sinni Nang og tengdadóttir Eu  0g bílstjóri var tengdapabbi

Nang og sluppu  Þau með lítilsháttar höfuðáverka og  Skrámur

 en mamma Tongdam hafði setið  Þar sem bíllinn lenti á þeim

og kastaðist  Út úr bílnum og lést á leiðinni á spítalann. 

 Við pöntuðum atrax flugfar til Thailands Og fórum daginn eftir

ásamt systrum Kam   Þeim Núan,Som og noiy.                                                                                                                                                                                                                                                                                              Ég 

Ég er staddur í húsinu þeirra systkina í Saphan Mai í Bangkok og veðrið

 er eins og venjulega hér um hábjartan daginn mjög heitt en gæti þó

 gert rigningu með kvöldinu því að nú er regntímabilið gengið í garð.

Mér finnst skárra að sitja inni og skrifa heldur enn að fara út í hitann

það er loftkæling í herberginu og friður þar inni utan fuglasöngsins

og alls skonar hljóða frá einhverjum kvikindum sem ég þekki lítið

,og einstaka sölumaður keyrir framhjá húsinu og er að selja hitt

og þetta sem hann lætur vita af í gegnum hátalarakerfi.Ég er að

 skrifa niður nokkra punkta um fjölskyldu Kam og varð kveikjan

 af því að ég hitti svo marga ættingja hennar í jarðarförinni og svo

 tengslin milli Ubon Racatani borgar sem er 130Km austan við

Dongloy þorpið sem foreldrar Kam bjuggu í og hvers vegna þau

 voru jörðuð þar en ekki í heimabænum og hvers vegna þau eru

 kristinnar trúar en ekki búdda eins og 90%Þjóðarinnar. 

 Dongloy er þorp sem samanstendur af bændabýlum og litlum

 þjónustustöðum svo og barnaskóla sem Afi Kam Khian átti

svo stóran þátt í að byggja á sínum tíma eins og ég kem betur

 að síðar. 15 km austan við þorpið er borgin Phanom Phrai

 sem kemur fram í bréfi sem Amerískur trúboði og hermaður að

nafni James F.Humphries Jr. Skrifaði til Ma Onsee eiginkonu Khian

og gaf þeim myndaalbúm með myndum sem hann hafði tekið er hann

 dvaldi í Thailandi um hríð.Þetta bréf er svo fallegt og yndislegt að eftir

að ég las það varð ég að vita eitthvað meira um þetta fólk!       

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 08:11:58 / aljekin

Afmæli

Var í afmæli í gær hjá Guðmundu sjöfn og Heimir .Hún Ester Eir var eins árs og var gaman í afmælinu og fjöldi manns. Við Kam fórum upp í Gróðrastöðina Gróanda á Laugardag og keyptum Stikkilsberjarunna sem við plöntuðum hér í gærmorgun og er garðurinn orðinn mjög flottur núna og verður orðinn mjög fallegur á næsta ári einnig vorum við búin að setja niður sólber og svo er rifsið orðið mjög stórt.Som systir Kam opnaði nýjan Krúa Thai stað á Laugardag í Bæjarlind í kópavogi þar sem Mekong var áður. Kam fór á Laugardag og Sunnudag að hjálpa henni og fékk staðurinn fljúgandi start. ég setti saman smá ritgerð um fjölskyldu Kam í Thailandi og sendi Noiy systir Kam hana í pósti og var hún mjög ánægð með hana og kannski ég birti eitthvað af þessu hér á síðunni næstu daga sjáum til.Í dag ljúkum við Magnús Rúnarsson væntanlega hinu mikla smíðaverki sem er í framkvæmd hér og er þetta frábærlega flott að verða hérna í kLapparberginu. bið að heilsa til allra sem þetta lesa og gangið á guðs vegum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 23:25:42 / aljekin

Laugardagur

Halló ég er mættur til leiks.Ýmislegt hefur gengið á hjá mér undanfarið en eins og allir vita fórum við Kam til Thailands 6 júní vegna þess að mamma hennar var að deyja og vorum við þar í mánuð og hitti ég mikið af hennar fólki þar í jarðarförinni.ég var nýbyrjaður að leggja drög að því að smíða pall hérna heima og var yfirsmiðurinn Magnús Rúnarsson mættur til leiks enn einu sinni til að flikka upp á eignina og hefur ekki slegið hér slöku við og er þessu verki bara alveg að verða lokið að sinni og er húsfreyjan hér alveg í skýjunum með þessa framkvæmd en smá hlé var gert á smíðinni og skroppið í 3 daga norður í Bitru í heyskap og var það alveg æðislega gaman og fengum við nýveiddan silung í nesti og buðum pabba og mömmu í mat hér á bæ og svo er stefnan sett á að klára hér smíðar á mánudag og þá er bara einhver málningarvinna eftir hjá mér enda gott að hafa eitthvað að gera úr því að ég varð að taka mér aukafrí.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 10:09:06 / aljekin

Kominn í frí

Heil og sæl öllsömul. Nú er fína veðrið í dag og kominn svona nettur vorfílingur í mig þó enn sé vetur og allra veðra von en mikið ofsalega er gott að vera kominn heim af sjónum og þessum eilífa velting sem við verðum að búa við þar. Ég hef verið frekar þreyttur síðan ég kom heim og lítið hreyft mig en fór þó til pabba og mömmu í gærkveldi í kjötsúpu og næs og þar voru líka Maggi,Brynja,Lísa og þorsteinn svo og Brynja litla. Fór í morgun að keyra Kam í vinnuna nýju hún er farin að vinna í Háskólanum og var mikil traffík á leiðinni og ég var svo heppinn að rakarinn minn mætti eldsnemma í vinnuna og fór ég til hans í leiðinni enda var ég kominn með tveggja mánaða lubba og ekki húsum hæfur útlits ég var orðinn eins og Eiríkur Hauksson og hefði sennilega verið sendur á Eurovision með honum ef til mín hefði sést áður en ég fór til míns morgunglaða rakara!! Annars gott að hætta bara hér í dag og reyna að skrifa eitthvað seinna ef ástæða þykir kveðja til allra Halli

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 07:51:38 / aljekin

Handboltaveisla

Heil og sæl öllsömul! Gott að vera kominn með fast land undir fætur í nokkra daga.Allt bara ágætt að frétta við gerðum ágætis túr þrátt fyrir slæm veður .aflaverðmætið um 81 milljón og fiskuðum um 600 tonn upp úr sjó sem er nú bara nokkuð gott á 26 dögum! Við sjómenn erum orðnir svolítið þreyttir að bíða eftir Íslenska sjónvarpinu á gerfihnött því að það var búið að tala um að það kæmi fljótlega en ekkert bólar á því! En við urðum bara að láta okkur útvarpslýsingar duga af Handboltanum og litlar sem engar fréttir af öðrum leikjum í fréttum. En Ég fékk nú hann Onna frænda minn til að senda mér skýrslur á E:mail um úrslit leikja og var það algjör björgun á mótinu fyrir okkur því spennan er að fylgjast ekki bara með strákunum okkar heldur úrslitum allra leikjanna! En nú er gott að geta fylgst með tveim næstu leikjum heima í stofu og horft á þá í beinni en við verðum farnir aftur út á sjó fyrir úrslitarimmuna um helgina! kveðja til allra sem þetta lesa og Áfram Ísland!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 15:58:24 / aljekin

Tenerife

Sæl öllsömul! Þá erum við hjónin komin heim frá Tenerife og runninn upp síðasti dagur ársins.Ferðin var frábær í alla staði og hótelið sem við vorum á mjög gott. Hlaðborð kvölds og morgna og skemmtanir á kvöldin og sólbaðsaðstaðan til fyrirmyndar. Við fórum í gönguferðir eftir ströndinni og í skoðunarferðir um eyjuna meðan á dvölinni stóð og kom okkur margt á óvart . Tenerife er ein af sjö Kananaríeyja og stærst þeirra. Spánverjar hertóku eyjarnar árið 1495 um svipað leiti og Kólumbus fór til Ameríku enda kom hann við á Eyjunum í þeirri ferð og dvaldi á eyjunni Comera sem er ein af þeim minnstu og sást hún allvel frá Playa la americas ströndinni þar sem við vorum.Frumbyggjar  eyjanna sem að talið er að hafi komið frá norðanverðri og vestur Afríku töluðu mál sem er kallað Chico og eru flest örnefni þarna komin úr því máli og til dæmis nafnið Tenerife sem þýðir hvíta fjallið því eyjan er 3718 metra hátt eldfjall og verður tindurinn (Teide) hvítur af snjó á veturna? Ég set spurningamerki við vetur því á eyjunni er eilíft vor! Hitinn fer sjaldan niður fyrir 20 stig. En auðvitað er mismunandi veður á eyjunni eftir því hvar þú ert þar staddur og til dæmis leigðum við okkur bíl og ókum upp að útsýnispalli við tindinn og vorum komin í 2100 metra hæð og var það æðisleg ferð og ekki laust við lofthræðslu annað slagið á leiðinni upp og þar var hitinn kominn í 9 gráður en ekkert kalt í glambandi sólinni en það var 22 stig niðri við strönd en skýjað er við fórum.Öll hús og borgir eru í bröttum hlíðum fjallsins og stórkostlegt að sjá þetta og er gróðurinn margbreytilegur eftir hæð yfir sjávarmáli og þegar komið er upp í 900 metra hæð kemur furskógur sem er bara til þarna og er friðaður í dag því að furan safnar í sig vatni og er vatnsforðabúr eyjarinnar.Frumbyggjarnir bjuggu í hellum í svona 600-700 metra hæð og er loftslagið mjög gott þar og einnig hefur verið gott að fela sig þar fyrir hugsanlega sjóræningjum sem komu að láta greypar sópa. Ég læt þetta nú gott heita í dag af fróðleik um ferð okkar og óska öllum gleðilegs árs og friðar. (Give Peace a Chance)

Og Saddam hvíl þú í friði .


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 12:07:22 / aljekin

Til Tenerife

Jæja gott fólk þá erum við hjónin bara að skella okkur til Tenerife í tvær vikur um jólin! Það verður örugglega rosalega gaman þó að maður eigi nú eftir að sakna fjölskyldunnar um jólin og svínakótilettanna hennar mömmu með öllu tilheyrandi!! Ég vona að allir hafi það gott um jólin og óska öllum gleðilegra jóla.

 

 



Jólavísa

 

 



Hamingjusólin hjá þér skín

Heima í bóli hlýju

Nú um jólin mamma mín

Mitt er skjól að nýju.

 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 13:16:23 / aljekin

Hugleiðing sjóarans

 

 



Hugleiðing

 

 



 

 



 

 



Arðræningja ær og kýr

Eitthvað brask  í landi

Og hamingjan í heiminum býr

Í hlutabréfum sem ei eru rýr

Og engin þar hætta á strandi.

 

 



En börnin litlu ei barma sér

Þó bágt sé hjá þeim út í heimi

Og á Íslandi fjölskylduhluturinn fer

Á færri hendur já því er nú verr

Þó betra líf okkur alltaf dreymi.

 

 



Er höldum við á hafið út

Heima bíður elskan okkar

Þar bíður oss í brælu og sút

Bras við verkun daginn út

Og ómögulegir kokkar.

 

 



En það er í lagi lengi vel

Lífið er svona meðalgrand

Öllum leiðist að ég tel

Og ef að fiskast ekki vel

Allir við færum í land.

 

 



Kaupið okkar er ei of  hátt

allt þó  landkrabbar lofa

Því er það orðin þjóðarsátt

Að það verði áfram lágt

Og verkalýðsforkólfar sofa.

 

 



En Íslenskir sjómenn erum við

Og eldhugar láta sig dreyma

fleyjinu okkar við skellum á skrið

og skundum á miðin þar fáum við frið

til að sakna allra vinanna heima.

 

 



 

 



Har Har


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3